Back to Jobs
Sóltún

Umönnunarstörf - Sóltún heilbrigðisþjónusta, Sólvangi í Hafnarfirði

Sóltún
Sólvangsvegi 2, 220 HafnarfirðiFull TimeEntry-levelPosted 2mo ago

Sóltún heilbrigðisþjónusta auglýsir eftir starfsfólki í umönnun

Sólvangur hjúkrunarheimili, hluti af Sóltúni heilbrigðisþjónustu, leitar að starfsfólki með hjartað á réttum stað í störf við umönnun.

Langar þig að vinna í góðum félagsskap og í gefandi starfsumhverfi þar sem þú tekur ríkan þátt í daglegu lífi aldraðra? Þá gæti þetta verið starfið fyrir þig.

Við leitum að duglegum, jákvæðum og stundvísum einstaklingum til starfa við umönnun aldraðra. 

Umsækjendur þurfa að hafa ríka samskiptahæfni og hafa gaman af því að umgangast eldra fólk.

Staðsetning: Sólvangsvegi 2, 220 Hafnarfirði 

Helstu verkefni:

  • Umönnun og aðstoð við daglegar athafnir íbúa
  • Stuðningur við vellíðan og félagslega virkni íbúa
  • Samvinna við samstarfsfólk í þverfaglegu teymi

Hæfniskröfur:

  • Jákvætt viðhorf, ábyrgð og góð samskiptahæfni
  • Góð íslenskukunnátta (C1/C2)
  • 18 ára aldur eða eldri
  • Hreint sakavottorð er skilyrði

Starfskjör og fyrirkomulag:

  • Um vaktafyrirkomulag er að ræða
  • Starfshlutfall er samkomulag
  • Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Eflingar og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu
  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • Íþróttastyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Fatapeningur

Sólvangur hefur á að skipa öflugum hópi starfsmanna með mikinn metnað fyrir vellíðan og lífsgæðum íbúa. Við leggjum áherslu á styðjandi starfsumhverfi þar sem starfsfólk fær tækifæri til að vaxa og þróast í starfi.

Um Sóltún heilbrigðisþjónustu

Sóltún heilbrigðisþjónusta er leiðandi þjónustuaðili á sviði velferðar- og öldrunarþjónustu á Íslandi. Markmið okkar er að auka velsæld og lífsgæði eldra fólks með fjölbreyttri og heildrænni heilbrigðisþjónustu, þar sem áhersla er lögð á virðingu, sjálfstæði og stuðning í daglegu lífi. 

Undir merkjum Sóltúns eru rekin hjúkrunarheimili í Reykjavík og Hafnarfirði, auk endurhæfingarþjónustu, dagdvalar og heimaþjónustu. Þjónustan er veitt af þverfaglegu teymi fagfólks sem vinnur saman að því að tryggja öryggi, vellíðan og gott líf íbúa og skjólstæðinga.

Hjá Sóltúni er lögð sérstök áhersla á nærandi samfélag þar sem umhyggja, fagmennska og jákvæð samskipti eru í fyrirrúmi. Starfsfólk er stærsta styrkleiki þjónustunnar og því er rík áhersla lögð á gott starfsumhverfi, samvinnu og tækifæri til starfsþróunar.

Ready to apply? You'll be taken to Sóltún's application page.
Umönnunarstörf - Sóltún heilbrigðisþjónusta, Sólvangi í Hafnarfirði at Sóltún