Leikskólinn Tröllaborgir óskar eftir að ráða starfsmann í 80-100% stöðu starfsmanns í leikskóla og móttökueldhús á ungbarnadeildina Árholt.
Ráðið er í stöðuna út næsta skólaár, til 2. júlí, með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Æskileg starfsbyrjun er í ágúst eða eftir samkomulagi.
Árholt er ungbarnadeild Tröllaborga staðsett í húsnæði við Háhlíð.
Lífsleikni í leikskóla eru áherslur Tröllaborga og byggir sú hugmyndafræði á kenningum ýmissa fræðimanna sem snúa að mannrækt og siðferðilegu gildismati í samfélagi manna og þeirri trú að efla og styrkja hið góða í hverjum einstaklingi bæði börnum og fullorðnum. Lögð er áhersla á að túlka lífsleiknina sem hugsjón sem þurfi að flæða yfir allt starf frekar en sem námsgrein innan skólans. Einnig er lögð áhersla á læsi og jóga.
Einkunnarorð skólans eru „Hugur- hjarta - hönd“.
Skólinn hefur tvær starfsstöðvar; að Tröllagili 29 og í Árholti Háhlíð 1
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn https://trollaborgir.karellen.is
Helstu verkefni:
- Vinnur að uppeldi og menntun barna. Fylgist vel með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
- Taka þátt í faglegu starfi skólans undir stjórn deildarstjóra og eða skólastjóra.
- Vinnur samkvæmt því skipulagi sem í gildi er
- Tekur á móti aðsendum hádegismat og kemur honum inn á deild.
- Sér um frágang eftir allar máltíðir.
Hæfniskröfur:
Óskað er eftir sjálfstæðum, ábyrgum og jákvæðum einstaklingum.
Mikilvægt er að þeir eigi auðvelt með mannleg samskipti og sé tilbúnir til að takast á við skemmtilegt og krefjandi starf með börnum.
Mikilvægt er að geta verið sveigjanlegir í starfi og tilbúin að ganga ýmis störf.
Gott vald á íslensku, bæði í rituðu og töluðu máli er nauðsynleg.
Æskilegt að viðkomandi hafi reynslu af starfi í leikskóla eða með börnum.
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Starfsfólk í leikskóla starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla, kjarasamningum, mannauðs- og skólastefnu Akureyrarbæjar.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Einingar-Iðju.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Egilsdóttir skólastjóri í síma 8224892 og 469 4700, netfang: annaegils@akmennt.is
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is
Aðgengi að tölvu og aðstoð við innskráningu umsókna stendur til boða á Amtsbókasafninu og í þjónustuanddyri Ráðhússins
Umsóknarfrestur er til og með 3. ágúst 2026.
