Back to Jobs
Akureyrarbær

Leikskólinn Tröllaborgir: Deildarstjóri

Akureyrarbær
TröllaborgirFull TimeEntry-levelPosted 7d ago

Leikskólinn Tröllaborgir óskar eftir að ráða deildarstjóra í 100% ótímabundna stöðu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í ágúst 2026 eða samkvæmt samkomulagi.

Í Tröllaborgum leggjum við áherslu á Lífsleikni í leikskóla og byggir sú hugmyndafræði á kenningum ýmissa fræðimanna sem snúa að mannrækt og siðferðilegu gildismati í samfélagi manna og þeirri trú að efla og styrkja hið góða í hverjum einstaklingi, bæði börnum og fullorðnum. Lögð er áhersla á að túlka lífsleiknina sem hugsjón sem þurfi að flæða yfir allt starf frekar en sem námsgrein innan skólans.

Einkunnarorð skólans eru „Hugur- hjarta - hönd“.

Skólinn hefur tvær starfsstöðvar; að Tröllagili 29 og í Árholti Háhlíð 1

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn https://trollaborgir.karellen.is/

Helstu verkefni eru:

  • Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni.
  • Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli stjórnenda og deildarinnar.
  • Tekur þátt í gerð skólanámskrár, ársáætlunar, mati á starfsemi skólans og þróunarverkefnum undir stjórn skólastjóra.
  • Ber ábyrgð á og stýrir deildarfundum og skipuleggur undirbúningstíma starfsfólks deildarinnar.
  • Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar.
  • Ber ábyrgð á að á deildinni sé unnið eftir skólanámskrá, starfsáætlunum og ársáætlun leikskólans.
  • Tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn, umönnun eftir þörfum.
  • Ber ábyrgð á að meðferðaráætlunum sérfræðinga vegna einstakra barna sé framfylgt.
  • Sér um samskipti og samvinnu við foreldra í samráði við skólastjóra
  • Situr fundi sem haldnir eru á vegum skólans.
  • Sinnir að öðru leyti þeim verkefnum er varðar stjórnun leikskólans sem yfirmaður felur honum.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Umsækjendur þurfa að hafa lokið leikskólakennaranámi eða annarri háskólamenntun (B.Ed., BA eða BS) sem nýtist í starfi skólans.
  • Reynsla af starfi með börnum.
  • Reynsla af stjórnun deilda er kostur.
  • Jákvæðni, sveigjanleiki, sjálfstæði og frumkvæði.
  • Samskiptafærni og lausnamiðuð hugsun.
  • Mjög góð færni í íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli.
  • Mjög góð tölvukunnátta er nauðsynleg.
  • Áhugi á þróunarstarfi og vera reiðubúinn að leita nýrra leiða í skólastarfi.
  • Reglusemi og samviskusemi.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Deildarstjóri starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla, kjarasamningum, mannauðsstefnu Akureyrarbæjar og skólastefnu Akureyrarbæjar.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar í netfanginu: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Egilsdóttir skólastjóri í síma 469 4700 netfang: annaegils@akmennt.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Umsóknarfrestur er til og með 3. ágúst 2026.

Ready to apply? You'll be taken to Akureyrarbær's application page.
Leikskólinn Tröllaborgir: Deildarstjóri at Akureyrarbær