
Frístundaráðgjafar/leiðbeinendur í frístundaheimilum í Laugardals-, Háaleitis- og Bústaðahverfi
ReykjavíkurborgSkóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar starfrækir frístundaheimili við alla grunnskóla borgarinnar. Á frístundaheimilunum er boðið uppá fjölbreytt tómstundastarf þegar hefðbundnum skóladegi lýkur. Þar starfa frístundaráðgjafar og frístundaleiðbeinendur og eru þeir lykillinn að því að veita íbúum fyrsta flokks þjónustu.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar leggur áherslu á starfsþróun og vellíðan starfsfólks.
Frístundamiðstöðin Kringlumýri starfrækir frístundaheimilin Álftabæ við Álftamýrarskóla, Krakkakot við Hvassaleitisskóla, Neðstaland við Fossvogsskóla, Sólbúa við Breiðagerðisskóla, Vogasel við Vogaskóla, Glaðheima við Langholtsskóla, Laugarsel við Laugarnesskóla og Dalheima sem er fyrir börn í 3. og 4. bekk úr Langholtsskóla og Laugarnesskóla.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-9 ára börn.
- Leiðbeina börnum í leik og starfi.
- Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
- Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla og aðra sem koma að frístundaheimilinu.
Hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
- Áhugi á að vinna með börnum.
- Frumkvæði og sjálfstæði.
- Færni í samskiptum.
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Í boði eru tímabundin hlutastörf 30-50% eftir hádegi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Árni Magnússon
Tölvupóstur arni.magnusson@reykjavik.is