Back to Jobs
Eimskip

Vöruhúsaþjónusta á Akureyri

Eimskip
Ísland - AkureyriFull TimePosted Yesterday

Eimskip leitar að þjónustulipru og drífandi starfsfólki í vöruhúsaþjónustu félagsins á Akureyri. Um er að ræða framtíðarstarf á kvöld- og næturvöktum. Við leitum að einstaklingi sem endurspegla gildi Eimskips: liðsheild, framsækni, áreiðanleiki og virðing.

Hjá Eimskip Akureyri starfar öflugur og samhentur hópur fólks í fjölbreyttum störfum sem snúa að þjónustu og dreifingu á vörum. Mikil áhersla er lögð á þjálfun og öryggismál hjá Eimskip og nýtur starfsfólk okkar góðs af stöðugri fræðslu og stuðningi, sem tryggir að öll séu vel undirbúin til að takast á við fjölbreytt verkefni og áskoranir.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vörumóttaka og vöruafgreiðsla
  • Losun og lestun flutningabíla
  • Samskipti og upplýsingamiðlun vegna vörusendinga
  • Önnur tilfallandi störf

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Starfsreynsla á sviði vöruhúsaþjónustu er kostur
  • Lyftararéttindi (J) er skilyrði
  • Almenn tölvukunnátta
  • Góð færni í íslensku- og/eða ensku
  • Góð þjónustulund, heiðarleiki og vönduð vinnubrögð
  • Frumkvæði, stundvísi og góð framkoma

Fríðindi í starfi

  • Heitur matur í hádeginu, fjölbreytt verkefni og góður starfsandi í samhentu teymi.
  • Aðgangur að öflugu starfsmannafélagi sem m.a. rekur orlofshús um allt land
  • Heilsu- og hamingjupakki sem inniheldur samgöngustyrk og styrki fyrir líkamsrækt, sálfræðiþjónustu og fleira.

Nánari upplýsingar veitir Gunnar Már Magnússon, verkstjóri í vöruhúsi, gumm@eimskip.com. Eingöngu er tekið á móti umsóknum í gegnum vefsvæði Eimskips.

Umsóknarfrestur er til og með 4.ágúst 2026

Hreint sakavottorð og 18 ára aldur er skilyrði fyrir ráðningu hjá Eimskip.

Ready to apply? You'll be taken to Eimskip's application page.