Back to Jobs
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili

Nemar í læknis- og hjúkrunarfræðum - sumarstörf

Heilsuvernd Hjúkrunarheimili
Urðarhvarf 16, 203 KópavogurFull TimeEntry-levelPosted 2d ago

Vilt þú vera með okkur í spennandi vegferð í nýju þjónustuúrræði fyrir aldraða í glæsilegri starfsstöð Heilsuverndar að Urðarhvarfi 16?

Heilsuvernd óskar eftir að ráða nema í læknis- og hjúkrunarfræðum í sumarstörf. Um fullt starf eða hlutastarf er að ræða.

Heilsuvernd er ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða.

Við leitum að einstaklingum sem hafa jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og eru tilbúnir að takast á við fjölbreytt verkefni í sterku teymi fagfólks undir merkjum Heilsuverndar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

- Almenn störf tengd fagsviði viðkomandi

- Skipulag og ábyrgð á að hjúkrun sé veitt í samræmi við sett markmið og gæðastefnu Heilsuverndar

- Eftirlit og mat á gæðum

Menntunar- og hæfniskröfur:

- Krafa um að viðkomandi hafi lokið að lágmarki 2. ári í hjúkrunarfræði eða 3. ári í læknisfræði frá viðurkenndri menntastofnun

- Áhugi á öldrunarþjónustu og vinnu með öldruðum

- Starfsreynsla í öldrunarþjónustu er æskileg

- Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji

- Góð almenn tölvukunnátta

- Góð samskiptahæfni

- Þolinmæði og sveigjanleiki

- Umsækjandi þarf að geta talað og skrifað íslensku

Um fullt starf eða hlutastarf í sumar er að ræða eða samkvæmt samkomulagi.

Umsóknum skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Öllum umsóknum verður svarað. Ráðið er í störfin óháð kyni.

Nánari upplýsingar veitir Hanna Guðlaugsdóttir framkvæmdastjóri mannauðs (hanna@hv.is) eða Fríður Brandsdóttir framkvæmdastjóri Heilsuverndar (fridur@hv.is).

Heilsuvernd samstæðan er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Markmið okkar er að hafa jákvæð áhrif á lífsgæði fólks og efla heilbrigði og vellíðan. Því hver dagur er dýrmætur.

Ready to apply? You'll be taken to Heilsuvernd Hjúkrunarheimili's application page.
Nemar í læknis- og hjúkrunarfræðum - sumarstörf at Heilsuvernd Hjúkrunarheimili