Heilsuvernd Dvöl-Endurhæfing óskar eftir að ráða sjúkraþjálfara til starfa. Um fullt starf eða hlutastarf er að ræða eða samkvæmt samkomulagi.
Á Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfingu eru rekin biðrými fyrir þá einstaklinga sem lokið hafa meðferð á Landspítalanum og hafa ekki heilsu til að búa í sjálfstæðri búsetu. Þjónustan felur í sér að veita þeim skjólstæðingum sem dvelja hjá okkur þá umönnun, þjálfun og eftirlit sem þeir þurfa, á meðan þeir bíða eftir varanlegu búsetuúrræði.
Heilsuvernd er ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða.
Við leitum að einstaklingi til starfa í fjölmenningarstarfshóp okkar sem hefur jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og er tilbúin að takast á við fjölbreytt verkefni í sterku teymi fagfólks undir merkjum Heilsuverndar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Þjálfun og meðferð einstaklinga
- Skipulag hópþjálfunar
- Fræðsla til skjólstæðinga
- Vinna í þverfaglegu teymi
- Þátttaka í þróun verkefna og þjónustu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Löggilt sjúkraþjálfarapróf og starfsleyfi landlæknis
- Jákvætt viðhorf og hæfni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæði í starfi og skipulögð vinnubrögð
- Hæfni til þess að vinna í þverfaglegu teymi
- Framsækni og metnaður til að ná árangri í starfi
- Reynsla og/þekking á meðferð og greiningu stoðkerfissjúkraþjálfunar er kostur
- Reynsla af starfi með öldruðum er kostur
- Almenn tölvukunnátta.
- Góð íslenskukunnátta, bæði talað og skrifað mál
Umsóknarfrestur er til og með 16. ágúst 2026.
Umsóknum skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf ásamt starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað. Ráðið er í starfið óháð kyni. Nánari upplýsingar veitir Aníta Magnúsdóttir, forstöðumaður, anitam@hv.is, Steinunn Ósk Geirsdóttir deildarstjóri, steinunnosk@hv.is eða Anna María Friðriksdóttir deildarstjóri, annamaria@hv.is.
Heilsuvernd samstæðan er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Markmið okkar er að hafa jákvæð áhrif á lífsgæði fólks og efla heilbrigði og vellíðan. Því hver dagur er dýrmætur.
