Back to Jobs
Akureyrarbær

Brekkuskóli: Textílkennari

Akureyrarbær
BrekkuskóliFull TimeEntry-levelPosted Today

Laus er til umsóknar 80% staða textílkennara í Brekkuskóla. Um er að ræða ótímabundna stöðu og kostur er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst á komandi skólaári.

Brekkuskóli, í samstarfi við heimilin, vinnur að því að búa nemendur undir líf og starf, að hjálpa þeim að finna og nýta hæfileika sína og stuðla að andlegu og líkamlegu heilbrigði þeirra. 

Í Brekkuskóla er mikil áhersla lögð á gott samstarf við foreldra. 

Brekkuskóli er uppbyggingarskóli og vinnur eftir agastjórnunarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar.

Einkunnarorð skólans eru menntun - gleði - umhyggja - framfarir

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.brekkuskoli.is

Leitað er að jákvæðum og lausnamiðuðum einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.

Starfssvið:

  • Skipulagning og framkvæmd textílkennslu innan skólans.
  • Þátttaka í þverfaglegu teymisstarfi með verk– og listgreinakennurum.
  • Umsjón með textílstofu og búnaði.
  • Samstarf við foreldra, fagaðila og aðra kennara og stjórnendur skólans.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
  • Sérhæfing í textílmennt er æskileg.
  • Áhugi á þróun kennsluhátta.
  • Reynsla af teymisvinnu æskileg.
  • Þekking og/eða vilji til að starfa eftir hugmyndafræði Uppbyggingastefnunnar.
  • Skipulagsfærni og fagleg vinnubrögð.
  • Samskiptafærni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
  • Góð færni í upplýsingatækni.
  • Gerð er krafa um vammleysi s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækjanda og menntun, kennslureynslu og þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfi kennara. Mikilvægt er að einnig komi fram hugmyndir umsækjenda og sýn á kennarastarfið og hvernig hann sé starf sitt sem kennara þróast.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna María Agnarsdóttir skólastjóri í síma 414-7900, netfang: johannam@akureyri.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Umsóknarfrestur er til og með 2. ágúst 2026

Ready to apply? You'll be taken to Akureyrarbær's application page.