Í Glerárskóla er laus staða aðstoðarmatráðs. Um er að ræða tímabundna stöðu frá ágúst 2026 til júní 2027 með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Starfshlutfall er 85% og vinnutími er frá kl. 8:00 – 15:00.
Í skólanum eru um 300 nemendur og um 65 starfsmenn.
Glerárskóli vinnur samkvæmt hugmyndafræði Jákvæðs aga og eflingu góðra og jákvæðra samskipta. Skólinn er Grænfánaskóli og stundar úti- og grenndarkennslu auk þess að leggja áherslu á læsi, leiðsagnarnám, góða stoðþjónustu, verkgreinar og teymisvinnu. Glerárskóli leitast við að undirbúa nemendur undir líf og starf með því að aðstoða þá við að finna og efla hæfileika sína, taka ábyrgð á eigin námi og gjörðum og efla andlegt og líkamlegt heilbrigði.
Stoðþjónusta Glerárskóla er gríðarlega öflug og fagleg en það styrkir allt skólastarf í þágu nemenda.
Glerárskóli Erasmus+ vottaður skóli. Glerárskóli er hnetulaus skóli.
Einkunnarorð skólans eru HUGUR-HÖND-HEILBRIGÐI
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.glerarskoli.is
Leitað er að hugmyndaríkum einstaklingi sem á auðvelt með að sýna sveigjanleika, hafa frumkvæði, sem hefur mikinn metnað fyrir mötuneyti skólans, á auðvelt með öll samskipti og sem leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.
Helstu verkefni aðstoðarmatráðar eru að:
- Aðstoða matráð við gerð og framreiðslu matar
- Útbúa mat fyrir starfsfólk og nemendur
- Útbúa síðdegishressingu fyrir nemendur í frístund
- Sjá um frágang og uppvask eftir máltíðir
- Dagleg þrif í eldhúsi
Hæfniskröfur:
- Þekking á gerð og framreiðslu matar
- Reynsla af starfi í mötuneyti t.d. í skóla er æskileg
- Nám sem nýtist í starfi er kostur
- Áhugi á framreiðslu matar og því tengdu
- Samskiptafærni, frumkvæði og samstarfsvilji
- Jákvæðni, stundvísi og sveigjanleiki
- Reglusemi og samviskusemi
- Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samræmist starfinu.
Umsókninni skal fylgja greinargóð ferilskrá um fyrri störf umsækjanda og þeirra verkefna sem viðkomandi hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni til að sinna starfi aðstoðarmatráðs í grunnskóla.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Einingar - Iðju.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Eyrún Skúladóttir skólastjóri, netfang eyrun@akmennt.is og í síma 461-2666.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is
Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í Þjónustuveri Akureyrarbæjar Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til og með 4. ágúst 2026.
