Back to Jobs
Isavia ohf

Sérfræðingur lagna- og loftræstikerfa

Isavia ohf
KeflavíkurflugvöllurFull TimePosted Today

Við leitum að drífandi sérfræðingi sem hefur góða þekkingu á lagna- og loftræstikerfum, til starfa í fjölbreyttu og krefjandi umhverfi á Keflavíkurflugvelli. Starfinu fylgja fjölbreyttar áskoranir í líflegu umhverfi og mun viðkomandi starfa innan deildar Eignastýringar þar sem starfar öflugur hópur sérfræðinga hver með fagþekkingu á sínu ábyrgðarsviði

Helstu verkefni:

  • Umsjón með rekstri og viðhaldi lagna- og loftræstikerfa innan flugstöðvar
  • Greining á ástandi innviða og mat á viðhaldsþörf
  • Samskipti við hönnuði, verktaka, birgja og aðra innri og ytri hagaðila
  • Innkaup og kostnaðareftirlit
  • Þátttaka í gerð rekstrar-, viðhalds- og fjárfestingaáætlana
  • Þátttaka og rýni í uppbyggingar- og framkvæmdaverkefnum

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Tækni- eða verkfræðimenntun eða önnur menntun sem ásamt reynslu nýtist í starfi
  • Reynsla af rekstri, viðhaldi eða hönnun lagna- og/eða loftræstikerfa
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
  • Góð tölvukunnátta
  • Góð skipulags- og samskiptahæfni
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði og jákvætt viðhorf

Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli og bjóðum við upp á rútuferðir milli höfuðborgarsvæðisins og flugvallarins fyrir starfsfólk Isavia

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Umsóknafrestur er til og með 17.ágúst 2026

Frekari upplýsingar um starfið veitir Finnur Þórðarson deildarstjóri, í gegnum netfang finnur.thordarson@isavia.is.

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.

Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Ready to apply? You'll be taken to Isavia ohf's application page.