Back to Jobs
Samkaup hf.

Kjörbúðin Keflavík hlutastarf

Samkaup hf.
ReykjanesbærFull TimePosted 3d ago

Kjörbúðin í Keflavík leitar að duglegum og samviskusömum einstaklingum í hlutastarf um helgar, annars vegar frá kl. 8-16 og hins vegar frá kl. 12:00–20:00. Möguleiki er á aukinni vinnu eftir þörfum. Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri.

Kjörbúðin er einstaklega skemmtilegur og líflegur vinnustaður og hentar starfið einstaklingum af öllum kynjum.

Helstu verkefni:

- Þjónusta við viðskiptavini og góð samskipti

- Afgreiðsla

- Áfyllingar á vörum

- Halda verslun snyrtilegri og skipulagðri

- Almenn störf tengd daglegum rekstri

Hæfniskröfur:

- Þjónustulund

- Skipulögð vinnubrögð

- Stundvísi og áræðni

Annað:

- Heilsustyrkur  

- Afsláttarkjör í verslunum Samkaupa.

- Velferðarþjónusta 

Áhugasamir eru hvattir til að senda inn umsókn, frekari upplýsingar um starfið veitir Adrian Kaiser verslunarstjóri í tölvupósti adrian.kaiser@kjorbudin.is

Samkaup hefur hlotið titilinn Menntafyrirtæki atvinnulífsins og einnig jafnlaunavottun Jafnréttisstofu.

Samkaup rekur 62 verslanir víðsvegar um landið. Þær spanna allt frá lágvöruverðsverslunum til þægindaverslana. Helstu verslunarmerki Samkaupa eru: Nettó, Kjörbúðin, Prís, SPAR, Krambúðin og 10-11. Hjá félaginu starfa um 1400 starfsmenn í um 650 stöðugildum.

Samkaup státar af öflugri jafnréttisstefnu sem nær ekki einungis til jafnréttis kynjanna heldur beinist einnig að hinsegin starfsfólki, erlendu starfsfólki og starfsfólki með skerta starfsgetu. Jafnréttisstefnan kallast Jafnrétti fyrir alla – Samkaup alla leið! og er stefna sem er unnið markvisst eftir á öllum starfsstöðvum Samkaupa.

Ready to apply? You'll be taken to Samkaup hf.'s application page.
Kjörbúðin Keflavík hlutastarf at Samkaup hf.