Við leitum að öflugum liðsmanni með góða þekkingu á málningu og málningarvinnu til að leiða málningadeild Húsasmiðjunnar á Akureyri. Starfið hentar sérstaklega vel þeim sem hefur starfað við málningu eða lokið iðnmenntun í greininni og vill nýta fagþekkingu sína í ráðgjöf og sölu.
Menntun eða reynsla í málningariðn er mjög mikill kostur. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að miðla fagþekkingu sinni og veita viðskiptavinum bæði fagfólki og einstaklingum framúrskarandi ráðgjöf.
Helstu verkefni:
- Fagleg ráðgjöf um málningu og tengdar vörur, almenna yfirborðsmeðferð og efnisval
- Sala og þjónusta við einstaklinga
- Sala, sókn og ráðgjöf við málara og annað fagfólk
- Umsjón með málningardeild
- Pantanir og birgðastýring
- Framsetning vara og útstillingar
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
- Menntun eða reynsla í málningariðn er mjög æskileg.
- Góð þekking á málningu, yfirborðsmeðferð og efnisvali.
- Metnaður fyrir því að veita faglega ráðgjöf og framúrskarandi þjónustu.
- Góð samskiptafærni og hæfni til að byggja upp traust við einstaklinga og fagmenn.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Áhugi á sölu og þjónustu.
- Stundvísi og ábyrgð í starfi.
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Verslunin er opin alla virka daga frá 08:00-18:00 (vinnutími eftir samkomulagi) og á laugardögum 10:00-16:00. Starfsmaður í fullu starfi vinnur á vöktum samkvæmt vaktaplani á virkum dögum og annan hvern laugardag. Við hvetjum öll áhugasöm til þess að sækja um starfið sem fyrst, óháð kyni.
Gildin okkar eru Gleði - Kraftur - Fagmennska
